Gamla Appið

Á þessari síðu má finna “gamla appið” fyrir eldri útgáfu úrhleypikerfisins.

Hvernig veit ég hvort ég sé með gamla eða nýja kerfið?

Nýja kerfið fór í sölu um mitt ár 2025. Ef þú ert með kerfi sem er eldra en 1. júní 2025 ert þú líklega með eldri útgáfuna (útgáfu 2) og skalt notast við gamla appið. Ef þú ert ekki viss getur þú prufað að sækja nýja appið og reyna að tengjast kerfinu. Ef það tekst, þá ertu með nýja kerfið, en ef appið finnur ekkert kerfi eða gefur þér “legacy device detected” viðvörun að þá ertu með eldra kerfið og skalt notast við þessa útgáfu.

Mikilvægar upplýsingar við uppfærslu

Tvennt sem við viljum minna á. Ef þú ert að uppfæra úr BETA útgáfunni sem hét “Alveg Pump” þá þarft þú að henda því appi út. Nýja appið heitir einfaldlega “pump.is”.

Hitt er að ef þú lendir í einhverju veseni með appið eða brettið, þá viljum við endilega heyra frá þér! Markmiðið er að allt virki alltaf án vandræða, og besta leiðin til að komast þangað er að að heyra frá ykkur ef eitthvað kemur upp. Best er að senda póst á app@pump.is. Takk!

Nýjasta útgáfa (1.3.2)

Leiðbeiningar um uppsetningu má finna hér (á ensku).

Sækja (gefin út 2024-04-17)

  • Bætir við möguleika að stilla leiðréttingastuðla.
  • Geymir síðasta þrýsting.
  • Birtir viðvörun ef það er slökkt á Bluetooth eða Location Services.